Beint í efni

Málræktarátak MS um nýyrði heldur áfram

20.05.2011

Þessa dagana er að hefjast nýtt tímabil á dreifingu nýyrða á mjólkurfernum. Alls munu tuttugu og fjórir nýir textar og myndskreytingar eftir Halldór Baldursson birtast á mjólkurfernunum um allt land fram á haust. Þá mun MS halda áfram samstarfi við Lýðheilsustöð og birtir hún texta á mjólkurfernunum sem fjalla um bætta lífshætti sem geta leitt til betra heilsufars.

 

Sem kunnugt er hófst málræktarátakið með þessu útgáfuefni síðastliðið haust. Nú verður fjölmörgum nýyrðum varpað fram og fólk hvatt til að finna önnur orð og hugsanlega betri á heimasíðu MS: www.ms.is. Orð eins og straumbreytir, tjása, endurfundir, hrynpar og mörg fleiri verða til skoðunar. Ráðgert er að þessi herferð standi til febrúar árið 2013, en áætlað er að textarnir og myndirnar hafi þá birst á um 64 milljónum ferna segir að lokum í fréttatilkynningu MS /SS.