Beint í efni

LS gefur út viðmiðunarverð kindakjöts fyrir komandi sláturtíð

11.08.2010

Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) hefur gefið út viðmiðunarverðskrá á kindakjöti fyrir komandi sláturtíð. Verðskráin hækkar um 5 prósent frá fyrra ári en sú hækkun er nánast á pari við hækkun vísitölu neysluverðs frá síðasta ári. Sala á kindakjöti fyrstu sex mánuði ársins hefur verið með svipuðu móti og var í fyrra og heldur betri það sem af er sumri. Úflutningur hefur hins vegar stóraukist frá síðasta ári og því telur stjórn LS svigrúm til hækkana nú.

Fréttatilkynning LS fylgir hér á eftir:

Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda ákvað á fundi á mánudag að nýta heimild sína til að gefa út viðmiðunarverð á kindakjöti. Verðið gildir fyrir komandi sláturtíð.  Verðskráin hækkar um 5% frá fyrra ári sem er nánast það sama og hækkun vísitölu neysluverðs á tímabilinu.  Sölusamdráttur varð á innanlandsmarkaði 2009. Á heildina litið hefur innanlandssala verið með svipuðu móti fyrstu 6 mánuði þessa árs, en það sem af er sumri er þó betra en í fyrra.  Vegna stóraukins útflutnings hefur afsetning hinsvegar gengið mun betur en 2009.  Stjórnin telur því svigrúm til að hækka viðmiðunarverðið um sem nemur vísitöluhækkun og örlítið umfram það vegna almennra kostnaðarhækkana.

Fyrir liggur að ekki verður gerður samningur um birgðahald við sláturhúsin á komandi hausti.  Stefnan er að greiða innleggjendum beint þá fjármuni  sem húsin hafa fengið greidda vegna þess.  Sláturhúsin sem þegar hafa gefið út verðskrá hafa lækkað verðskrá sína sem því nemur.  Verðskrá LS tekur einnig mið af því.  Það er þó gert með þeim fyrirvara að heimild sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins fáist til að greiða fjármunina út með áðurnefndum hætti.  Verð á ærkjöti er þó ekki lækkað með sama hætti þar sem að stjórnin taldi verð þess orðið óásættanlega lágt.  

Verðlagning á kindakjöti er frjáls en LS hefur heimild í búvörulögum til að gefa út viðmiðunarverð til bænda.

Verðskrá LS má nálgast hér