Loka þremur afurðastöðvum
09.02.2012
Stjórn Arla hefur tekið ákvörðun um að loka þremur ostavinnslum sínum og sameina framleiðsluna á hefðbundnum föstum osti í Taulov afurðastöðinni í Danmörku. Um er að ræða afurðastöðvarnar í Klovborg og Hjørring í Danmörku og auk þess Falkenberg í Svíþjóð. Ástæður þess að farið er í þessar miklu aðgerðir eru fyrst og fremst af hagkvæmnisástæðum enda óhagræði af því að framleiða osta á mörgum stöðum fyrir félagið. Þess má geta að til þessa hefur afurðastöðin í Falkenberg unnið árlega úr nærri 400 milljónum lítrum mjólkur.
Alls mun félagið fjárfesta fyrir 39 milljarða króna á árinu í tengslum við ýmis fjárfestingaverkefni og u.þ.b. helmingur fjárhæðarinnar rennur til hagræðingarverkefna innan félagsins s.s. uppbyggingarinnar á Taulov afurðavinnslunni. Heildarvelta félagsins á árinu er talin verða um 1.300 milljarðar króna/SS.