Beint í efni

LK 20 ára í dag!

04.04.2006

Í dag eru liðin 20 ár frá stofnun Landssambands kúabænda.  Stofnfundur Landssambands kúabænda var haldinn 4. apríl 1986. Fundarboðandi var Félagsráð Osta- og smjörsölunnar og var fundurinn haldinn í húsakynnum hennar. Fundinn sátu 20 fulltrúar frá 9 félögum kúabænda. Einnig fulltrúar frá Félagsráði Osta- og smjörsölunnar og fulltrúar frá Stéttarsambandi bænda og Búnaðarfélagi Íslands. Á fundinum var samþykkt að stofna Landssamband kúabænda og því settar samþykktir.

Eftirtaldir fulltrúar sátu stofnfundinn:
Frá Félagi kúabænda á Suðurlandi: Guðmundur Lárusson, Sigurður Steinþórsson, Guðjón Eggertsson, Egill Sigurðsson, Steingrímur Lárusson, Bergur Pálsson, Ómar H. Halldórsson og Kjartan Georgsson.
Frá Félagi kúabænda í Skagafirði: Jón Guðmundsson og Sverrir Magnússon.
Frá Félagi kúabænda á sunnanverðu Snæfellsnesi: Magnús Guðjónsson.
Frá Félagi húnvetnskra kúabænda: Halldór Guðmundsson og Jón Eiríksson.
Frá Félagi eyfirskra nautgriparæktenda: Oddur Gunnarsson og Benjamín Baldursson.
Frá Félagi kúabænda í Mýrasýslu: Þorkell Guðbrandsson.
Frá Hagsmunafélagi mjólkurinnl. á svæði við Búðardal: Vilhjálmur Sigurðsson.
Frá Félagi kúabænda í Borgarfjarðarsýslu norðan Skarðsheiðar: Jón Gíslason.
Frá Mjólkursamlagi Kjalarnesþings: Pétur Lárusson og Sigurbjörn Hjaltason.

 

Fyrsta stjórn sambandsins var þannig skipuð: Formaður; Hörður Sigurgrímsson. Meðstjórnendur; Guðmundur Þorsteinsson, Oddur Gunnarsson, Halldór Guðmundsson og Sturlaugur Eyjólfsson. Varamenn; Guðmundur Lárusson og Ólafur Þórarinsson.

 

LK mun minnast þessara tímamóta með afmælishátíð í Smáralind n.k. laugardag 8. apríl, þar sem í boði verða margs konar skemmtiatriði. Hátíðahöldin ná síðan hámarki með glæsilegri afmælisárshátíð á Broadway um kvöldið, hefst hún kl. 19 með fordrykk. Miðapantanir í síma 563 0300 eða á bhb@naut.is.