Lífland lækkar verð á kjarnfóðri um 4%
01.03.2016
Lífland hefur í dag, 1. mars 2016, sent frá sér svofellda tilkynningu:
Lífland mun þann 1. mars lækka verð á kjarnfóðri um 4%. Um leið mun verð á helstu hráefnum lækka, mismikið eftir tegundum. Lækkanirnar eru í samræmi við gengisþróun og lækkun á hráefnaverði á heimsmarkaði.