Beint í efni

Lífland lækkar fóðurverð um 2,5%

30.09.2015

Lífland mun þann 1. október næstkomandi lækka verð á öllu kjarnfóðri um 2,5%. Um leið mun verð á helstu hráefnum lækka, mismikið eftir tegundum. Þrátt fyrir breytingar á ytri forsendum, meðal annars vegna kjarasamningsbundinna launahækkana og hækkaðs fjármagnskostnaðar, þá vegur verðþróun á hráefnum á heimsmarkaði ásamt hagstæðri gengisþróun það þungt að þessar breytingar eru gerlegar á þessum tímapunkti. Lækkanirnar eru jafnframt í samræmi við þá stefnu Líflands að viðskiptavinir njóti jákvæðrar verðþróunar í heimsmarkaðsverði hráefna. Nýjan og uppfærðan kjarnfóðurverðlista félagsins má kynna sér hér.