Lífland hækkar verð á kjarnfóðri um 6-9%
15.06.2012
Svofelld fréttatilkynning hefur borist frá Líflandi:
„Lífland tilkynnir hér með um hækkun á kjarnfóðri. Hækkunin er á bilinu 6-9%, mismunandi eftir tegundum.
Á síðustu mánuðum hefur verð á helstu aðföngum til fóðurgerðar hækkað verulega. Mest hefur hækkunin orðið á sojamjöli vegna uppskerubrests í S-Ameríku, en einnig hefur korn hækkað talsvert í verði í N-Evrópu. Lífland hefur í fjölmiðlum ítrekað vakið athygli á þessum hækkunum og áhrifum þeirra á verð fóðurs.
Jákvæðu fréttirnar eru þær að gengi íslensku krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum hefur að undanförnu styrkst nokkuð og gerir sú styrking það að verkum að hægt er að halda verðbreytingu nú í lágmarki.
Hækkunin tekur gildi mánudaginn 18. júní 2012.
Allar nánari upplýsingar veitir undirrituð í síma 540-1100.
Virðingarfyllst,
F.h. Líflands
Bergþóra Þorkelsdóttir
framkvæmdastjóri“