Lífland hækkar kjarnfóðurverð um 4%
30.06.2016
Fréttatilkynning frá Líflandi
Þann 1. júlí næstkomandi hækkar verð á öllu kjarnfóðri hjá Líflandi um 4%. Um er að ræða fyrstu verðhækkun í rúm þrjú ár, en frá því í febrúar 2013 hefur kjarnfóðurverð hjá Líflandi að meðaltali lækkað um 25%.
Hækkunin nú kemur til vegna talsverðra sviptinga á hrávörumarkaði, en sojamjöl hefur á síðustu mánuðum hækkað mjög í verði sem og önnur hráefni að mismiklu leyti. Hagstæð gengisþróun hefur hjálpað til og gert það að verkum að hægt hefur verið að fresta verðhækkunum til þessa.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður landbúnaðarsviðs, Jóhannes Baldvin Jónsson.