Lífland hækkar fóðurverð um 5-6%
17.05.2009
Lífland hf hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu:
Hjá Líflandi hefur verið tekin sú ákvörðun að hækka verð á kjarnfóðri um 5-6%.
Á þeim þremur mánuðum sem liðnir eru frá síðustu verðbreytingu fóðurs þá hefur íslenska krónan veikst talsvert gagnvart erlendum gjaldmiðlum, gagnvart Bandaríkjadal um 10% og gagnvart Evru nálægt 16%.
Á sama tíma hafa orðið nokkrar hækkanir á hráefnum til fóðurgerðar á erlendum mörkuðum, sér í lagi veruleg hækkun á sojamjöli og maís.
Við höfðum bundið miklar vonir við að þróun gengis yrði hagstæðari en raun ber vitni, en því miður hafa þær vonir brugðist. Því er verðhækkun á þessum tímapunkti óhjákvæmileg.
Hækkunin tekur gildi mánudaginn 18. maí.
Bergþóra Þorkelsdóttir
Framkvæmdastjóri“