Lenging mjaltaskeiðsins, hagkvæm lausn?
30.04.2016
Vísindamenn við háskólann í Árósum hafa birt bráðabirgðauppgjör rannsóknar sinnar á hagkvæmni þess að lengja mjaltaskeið kúnna úr hinum algengu 12-13 mánuðum í 15 eða 17 mánuði. Í ljós kom að það getur haft jákvæð áhrif á búreksturinn að halda kúnum heldur sjaldnar en gert er í dag, séu allar forsendur réttar fyrir slíkri ákvörðun. Vissulega gerist það að afurðasemi kúnna fellur eftir því sem líður á en á móti kemur sparnaður í bæði fóðri, dýralæknakostnaði og vegna minni frjósemisvandamála.
Í útreikningum vísindamannanna er komið inn á öll helstu atriði sem lúta að lengingu mjaltskeiðs eins og minni heildarframleiðsla búsins á kjöti og fleiri slík atriði en niðurstaðan er nokkuð skýr í þá átt að mestur reiknaður hagnaður verður ef mjaltaskeiðslengdin er 15 mánuðir að jafnaði. Rétt er að minna aftur á að um bráðabirgðaútreikninga er að ræða en vissulega einkar áhugavert og væri fróðlegt að fá sambærilega athugun gerða hér á landi/SS.