Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Legubásafjós, notuð og ný – námskeið á Hvanneyri

10.09.2007

Eins dags námskeið, fyrir kúabændur, um nýjungar varðandi aðbúnað nautgripa og hönnun á legubásafjósum, eftirlitskerfi, tæknilausnir og viðhald legubásafjósa. Óbeint framhald Fjósbyggingarnámskeiðanna sem haldin voru 1998-2000.

 

Á námskeiðinu verður farið yfir nýjungar á sviði húsbygginga, innréttinga og fóðrunartækni í legubásafjósum. Þá verður farið yfir ýmsa þætti varðandi hönnun mjaltaaðstöðu og -tækni, bæði fyrir mjaltagryfjur og mjaltaþjóna. Auk þess verður eftirlit og eftirlitskerfi rætt sérstaklega en ýmsar áhugaverðar nýjungar eru nú aðgengilegar fyrir legubásafjós. Sérstök áhersla verður jafnframt lögð á hönnun aðstöðu fyrir geldneyti. Þá verður varið drjúgum hluta námskeiðsins í það að fara yfir reynslu hérlendra bænda af nýbyggðum fjósum og hvað þeir telja að skuli varast og hvað hafi tekist sérlega vel. Þetta er námskeið sem á erindi til allra kúabænda sem hafa staðið í framkvæmdum, eru að standa í framkvæmdum eða eru að huga að framkvæmdum.

 
 

Umsjón og kennsla: Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri búrekstrar við LbhÍ.

Tími: þriðjudaginn 23. okt. Kl. 09:00 – 17:00 (9 kennslustundir) í kennslustofu nýja fjóssins á Hvanneyri í Borgarfirði.

Verð: 12.500.-

 

Skráningafrestur til 16. október

 

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2200 kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590.

 

Minnum á Starfsmenntasjóð bænda – sjá heimasíðu BÍ en þar má finna úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð

 

Skráningar fara fram á heimasíðu LbhÍ,

endurmenntun@lbhi.is eða í síma undirritaðrar

 

Með kveðju

Ásdís Helga Bjarnadóttir

Starfs- og endurmenntunardeild

Landbúnaðarháskóla Íslands

S: 433 5033/ 843 5302/433 5000