Landstólpi lækkar kjarnfóðurverð
03.04.2013
Svofelld tilkynning barst síðdegis í gær frá Landstólpa ehf:
„Landstólpi tilkynnir verðlækkun á kjarnfóðri. Fóðrið lækkar misjafnlega mikið eftir tegundum en tilefni lækkunar er samspil nokkurra þátta. Um leið og við þökkum frábærar móttökur með nýjan valkost á fóðurmarkaði ætlum við okkur að sjálfsögðu að halda áfram að bjóða gæða fóður á mjög samkeppnisfæru verði“.