
Landsmóti hestamanna 2020 frestað
17.04.2020
Búið er að fresta Landsmóti hestamanna 2020, sem halda átti á Rangárbökkum í sumar, vegna kórunufaraldursins og tilmæla yfirvalda um takmarkanir á fjöldasamkomum. Í tilkynningu frá aðstandendum mótsins kemur fram að það verði haldið sumarið 2022 á Hellu.
Tilkynning mótshaldara er hér í heild sinni:
"Sú ákvörðun hefur verið tekin af Landssambandi hestamannafélaga, Félagi hrossabænda og Rangárbökkum, þjóðaleikvangi íslenska hestsins ehf. að fresta Landsmóti hestamanna sem fara átti fram á Hellu dagana 6. – 11. júlí. Í samráði við Hestamannafélagið Sprett mun mótið fara fram á Hellu sumarið 2022. Af þeim sökum verður Landsmót hestamanna haldið í Kópavogi árið 2024 í stað 2022 eins og samningar gerðu ráð fyrir.
Þeim aðilum sem sótt höfðu um að halda landsmótið 2024 hefur verið gefin kostur á að færa þær umsóknir yfir á landsmótið árið 2026.
Sú heilsufarsvá sem stafar af COVID-19 faraldrinum á heimsvísu er ekki liðin hjá og mun hafa ýmsar takmarkanir í för með sér á næstu mánuðum. Í máli sóttvarnalæknis, Þórólfs Guðnasonar hefur komið fram að fjöldasamkomur skuli takmarkaðar við 2000 manns a.m.k. út ágústmánuð. Landsmót hestamanna er því of fjölmenn samkoma til að hægt sé að halda hana í sumar.
Þeir sem keypt hafa miða á viðburðinn munu fá tölvupóst frá tix miðasölu ásamt því að allar upplýsingar eru aðgengilegar á www.landsmot.is. Miðahafar geta valið um þrennt a) fá endurgreitt b) láta miðann gilda fram til 2022 eða c) styrkja viðburðinn. Allar bókanir á tjaldsvæðum verða endurgreiddar. Fyrirspurnir varðandi viðburðinn skal senda á landsmot@landsmot.is en varðandi miðasölu á info@tix.is."
Í niðurlagi tilkynningar aðstandenda landsmót segir að öll él stytti upp um síðir. Málsaðilar senda hestamönnum baráttukveðjur og hvetja til þess að allir fari að útgefnum reglum og tilmælum almannavarna ríkislögreglustjóra.