
Landbúnaðarráðherra Grænlands í heimsókn í Bændahöllinni
15.08.2008
Grænlenski sjávarútvegs-, veiðimála- og landbúnaðarráðherrann, Finn Karlsen hefur dvalið hér á Íslandi undanfarna daga í boði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Einars K. Guðfinnsonar. Um hádegisbil var hann í heimsókn í Bændahöllinni þar sem hann hitti m.a. Harald Benediktsson, formann Bændasamtaka Íslands, og kynnti sér starfsemi samtakanna.
Heimsóknin Karlsen til Íslands hófst formlega þriðjudaginn 12. ágúst. Þá hittust ráðherrarnir á Ísafirði og kynntu sér svæðið og starfsemi nokkurra fyrirtækja vestra. Dagskránni fyrir vestan lauk með fundi með bæjarstjórum Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur þar sem rædd voru sameiginleg hagsmunamál og kom fram vilji allra aðila að auka samskipti.
Á miðvikudaginn héldu ráðherrarnir fund í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu þar sem ýmis sameiginleg hagsmunamál landanna voru rædd. M.a. komu þar til umræðu málefni er lúta að veiðum á grálúðu og hvernig megi stýra þeim veiðum frekar og komast að samkomulagi um veiðarnar, en báðir aðilar hafa áhyggjur af minkandi grálúðustofni. Samþykktu ráðherrarnir að sérstakri nefnd embættismanna beggja þjóða verði komið á og mun hún taka til starfa innan tíðar. Þá munu fulltrúar ráðuneytanna einnig fjalla um veiðar á karfa. Ráðherrarnir ræddu nauðsyn þess að auka rannsóknir á þorskstofnum landanna og voru sammála um að auka samvinnu þar að lútandi. Eftir hádegi var farið í fyrirtæki og stofnanir á höfuðborgarsvæðinu sem tengjast sjávarútvegi.
Í gær fimmtudag var svo sem fyrr segir heimsókn til Bændasamtaka Íslands auk ferðar að Hvanneyri þar sem Landbúnaðarháskóli Íslands var skoðaður. Opinberri heimsókn ráðherrans lýkur í kvöld, og heldur hann af landi brott ásamt aðstoðarmanni sínum, á laugardagsmorgun.
Meðfylgjandi mynd er af komu Finn Karlsen í Bændahöllina. Frá vinstri eru Niels Árni Lund, skrifstofustjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, Finn Karlsen, ráðherra sjávarútvegs, veiði- og landbúnaðarmála Grænlands og loks aðstoðarmaður hans, Hans Möller.