
Landbúnaðarráðherra áhyggjufullur um stöðu bænda
04.02.2009
Í viðtali í hádegisfréttum RÚV sagði Steingrímur J. Sigfússon, nýr landbúnaðarráðherra, að hann óttast að margir bændur þyrftu að bregða búi vegna fjárhagserfiðleika. Sagðist hann ætla að leita eftir viðræðum við bændaforystuna á næstunni um möguleg úrræði.
Sagðist hann ekki aðeins hafa áhyggjur af stöðu kúabænda, heldur bændastéttinni í heild. Erlend lán væru þung á fóðrum um þessar mundir og þar að auki hafi landbúnaðurinn þurft að taka á sig kostnaðarhækkanir. Steingrímur sagði óumflýjanlegt að skoða hvað hægt verði að gera til að bændur ráði við áburðarkaup í vor.