
Kýrhausinn ónothæfur um sinn
04.04.2017
Unnið er að lagfæringum á Kýrhausnum, spjallsvæði naut.is, um þessar mundir og er fólki ráðlagt að bíða með að setja inn færslur þar sem hætta er á að færslur sem settar verða inn í dag hverfi. Svo virðist sem gerviaðgangar, eða svokallaðir spam-póstar, hafi yfirtekið svæðið í morgun.
Ætla má að spjallsvæðið verði komið í lag síðar í dag.