Beint í efni

Kúariða greinist í Danmörku

16.05.2002

Áttunda tilfelli af kúariðu í Danmörku hefur nú verið staðfest af rannsóknarstofu í Englandi. Kýrin fannst í kúahjörð á Borgundarhólmi (Bornholm) við hefðbundið eftirlit. Allir gripir búsins verða aflífaðir, sem og þeir gripir sem seldir hafa verið til lífs á undanförnum árum.

 

Kúabúið þar sem kýrin var hefur lífræna vottun, en kýrin fæddist áður en búið fékk vottunina. Þetta tilfelli er það fyrsta síðan í nóvember 2001, en samkvæmt upplýsingum frá dönskum yfirvöldum er ekki talin ástæða til að breyta því kerfi sem í dag er notað til að kanna hvort um kúariðusmit sé að ræða í dönskum hjörðum.

 

Enn er ekki vitað hvernig kúariðusmitið komst í þessa hjörð, en verið er að rannsaka hvort hugsanlegt sé að kálfamjólk sem hafi innihaldið dýrafitu gæti verið orsök smitsins.