
Kúahland selst vel!
09.09.2016
Í Indlandi er talið að verðmæti sölu á eimuðu kúahlandi sé áþekk verðmæti mjólkursölunnar í landinu, en hland-þykknið er notað sem hráefni til sápugerðar, í hreinsiefni og margskonar indverskar heilsuvörur. Um mikinn stóriðnað er að ræða í Indlandi og má í því sambandi nefna t.d. fyrirtæki jóga-gúrúsins Bada Ramdev sem framleiðir ótal vörur úr kúahlandi. Helsta afurðin er gólfhreinsiefnið Gaunyle en á hverjum degi eru framleidd 20 tonn sem er hámarks framleiðslugeta í dag vegna skorts á hlandi, en eftirspurnin er víst miklu meiri en þessi 20 tonn!
En hvernig standa kúabændur landsins að því að safna hlandinu og koma því í „hland-afurðastöð“? Hlandinu er einfaldlega safnað með því að hlaupa með fötu undir kýrnar þegar þær pissa enda má hlandið ekki fara á gólfið. Á hverju því búi sem safnar hlandi eru 3 starfsmenn á hverjar 20 kýr og vinna þeir á vöktum við að stökkva til þegar kýrnar þurfa að pissa og skila af sér þessum 15-20 lítrum á dag/SS.