Kúabændur fjölmenna í Eyjafjörðinn 17. apríl nk.
25.03.2004
Ákvörðun stjórnar LK um að halda aðalfund og árshátíð kúabænda á Akureyri hefur fengið mjög góðar viðtökur kúabænda landsins, og ljóst að það verður róleg helgi hjá kúm landsins 17.-18. apríl nk. Miðapöntunum á árshátíðina hefur rignt inn yfir skrifstofu LK og eru þegar farnir á annað hundrað miðar. Í upphafi var gert ráð fyrir 200 manna samkomu, en nú liggur fyrir að gera þarf ráð fyrir mun fjölmennari samkomu.