Beint í efni

Kú stolið á leið í sláturhús!

01.06.2005

„Listamenn“ í Chíle stálu á dögunum kú á leið í sláturhús og komu henni upp á þak á tíu hæða húsi í borginni Santiagó. „Listamennirnir“, sem ekki vilja þó gefa upp nöfn sín, gerðu þetta sem hluta af sköpunarverki sínu. Fenginn var krani og var kýrin svo hífð upp á þak hússins sem hafði sérstaklega verið breytt í búgarð vegna listaverksins. Þar var hún svo höfð í viku, mjólkuð þar og var svo sleppt í „náttúrulegu umhverfi“.