Kótelettan á Selfossi 8.-10. júní 2012 – heilgrillað naut á laugardag!
08.06.2012
Bæjar-, fjölskyldu- og tónlistarhátíðin Kótelettan verður haldin í 3. sinn á Selfossi 8. – 10. júní n.k. Hátíðin er í samstarfi við Eimskip, Pepsi Max, Tuborg, EB Kerfi og fjölda annara fyrirtækja. Síðustu ár hefur hátíðin einkennst af góðum grill ilm sem leggst yfir bæinn þegar bæjarbúar tendruðu grillin.
Landssamband kúabænda og Félag kúabænda á Suðurlandi, í samvinnu við Sláturhúsið Hellu hf og MS, bjóða upp á heilgrillað naut á hátíðinni, eftir hádegi á morgun, laugardaginn 9. júní.
Í boði er heilgrillaður UN úrval A skrokkur, 230,5 kg frá Langagerði í Fljótshlíð, með piparrótarsósu, sem samanstendur af 10% sýrðum rjóma, ferskri piparrót og dijon sinnepi./BHB