Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Kosningar um búvörusamninga og kjörskrár á Bændatorgi

12.02.2016

Nú standa yfir viðræður á milli fulltrúa ríkis og bænda um nýja búvörusamninga. Á næstu vikum er stefnt að undirskrift þeirra en í kjölfarið verður atkvæðagreiðsla á meðal bænda. Atkvæðagreiðslan verður rafræn en póstkosning í boði fyrir þá sem óska. Áður en til kosninga kemur er mikilvægt að bændur gangi úr skugga um að þeir séu á kjörskrá.

Kjörskrár verða aðgengilegar á Bændatorgi frá 15. febrúar
Kjörskrár fyrir kosningar um nýja búvörusamninga fyrir sauðfjárafurðir annars vegar og nautgriparækt hins vegar verða aðgengilegar á Bændatorginu frá og með 15. febrúar. Allir sem hafa aðgang að því geta frá og með þeim tíma skoðað hvort þeir eru á kjörskrá. Bændatorgið er aðgengilegt frá heimasíðu BÍ með því að smella á innskráningartakka efst í horninu hægra megin. Þeir sem ekki hafa nú þegar aðgang að því geta stofnað aðgang með nýskráningu í gegnum www.island.is. Fyrirspurnum um kjörskrár er einnig hægt að beina til Bændasamtaka Íslands, Landssamtaka sauðfjárbænda eða Landssambands kúabænda.

Á kjörskrá fyrir atkvæðagreiðslu um nýjan samning um starfsskilyrði nautgriparæktarinnar eru þeir sem fengu einhverskonar greiðslur úr samningi um starfsskilyrði mjólkurframleiðslunnar á verðlagsárinu 2015, þ.m.t. beingreiðslur, gripagreiðslur og gæðastýringargreiðslur og eru félagar í BÍ. Að auki eru á kjörskrá þeir sem koma að viðkomandi rekstri og eru félagar í aðildarfélagi BÍ, 18 ára og eldri, t.d. makar eða aðrir meðeigendur.

Um sauðfjársamning hafa atkvæðisrétt allir sem fengu greiðslur úr sauðfjársamningi á verðlagsárinu 2015, þ.m.t. beingreiðslur, gæðastýringarálag, vaxta- og geymslugjald, ullarniðurgreiðslur, svæðisbundnar greiðslur og greiðslur skv. 64. ára reglu og eru félagar í BÍ. Einnig aðilar sem koma að viðkomandi rekstri og eru félagar í aðildarfélagi BÍ, 18 ára og eldri, t.d. makar eða aðrir meðeigendur.

Félagsaðild miðast við 22. febrúar 2016. Þeir sem telja sig eiga að vera á kjörskrá samkvæmt ofangreindu en birtast þar ekki geta sent erindi þess efnis ásamt rökstuðningi til kjörstjórnar kosninganna. Í kjörstjórn sitja: Erna Bjarnadóttir
(eb@bondi.is), Baldur Helgi Benjamínsson (bhb@naut.is) og Svavar Halldórsson mailto:svavar.halldorsson@bondi.is).

Kærufrestur er til 27. febrúar 2016. Áformað er að kosning um samningana fari fram rafrænt í gegnum Bændatorgið. Póstkosning er í boði fyrir þá sem þess óska. Óskum um póstatkvæði þarf að koma til Bændasamtaka Íslands (sími 563-0300) eða til kjörstjórnar fyrir 27. febrúar nk.