Konur í meirihluta í stjórn Bændasamtaka Íslands
06.03.2013
Kosning til stjórnar Bændasamtaka Íslands fór fram í gær. Úrslit kosninganna urðu á þann veg að í fyrsta sinn í sögunni eru konur í meirihluta í stjórn BÍ, en stjórnina skipa fjórar konur og þrír karlar. Eftirtaldir einstaklingar náðu kjöri: Guðný Helga Björnsdóttir á Bessastöðum fékk 41 atkvæði, Fanney Ólöf Lárusdóttir á Kirkjubæjarklaustri 37 atkvæði, Guðbjörg Jónsdóttir á Læk 36 atkvæði, Þórhallur Bjarnason á Laugalandi 36 atkvæði, Einar Ófeigur Björnsson í Lóni 35 atkvæði og Vigdís Sveinbjörnsdóttir á Egilsstöðum 35 atkvæði. Teljast þau sex réttkjörin sem stjórnarmenn BÍ til næstu þriggja ára. Fyrr um daginn hafði Sindri Sigurgeirsson svo verið kosinn formaður samtakanna. Þess má einnig geta að Guðný Helga Björnsdóttir er varaformaður stjórnar Landssambands kúabænda.
Í kjölfar kosninga til stjórnar var samþykkt tillaga uppstillingarnefndar um varamenn fyrir hvern stjórnarmann. Varamaður Sindra er Guðmundur Davíðsson í Miðdal, varamaður Guðnýjar Helgu er Guðrún Lárusdóttir í Keldudal, varamaður Fanneyjar Ólafar er Ólafur Þ. Gunnarsson á Giljum, varamaður Guðbjargar er Guðrún Stefánsdóttir í Hlíðarendakoti, varamaður Þórhalls er Jón Magnús Jónsson á Reykjum, varamaður Einars Ófeigs er Jóhannes Ævar Jónsson á Espihóli og varamaður Vigdísar er Skúli Þórðarson á Refstað.
www.bbl.is sagði frá