
Kjarnfóður heldur áfram að hækka
29.10.2018
Frá og með deginum í dag, 29. október, hækkar Landstólpi verð á kjarnfóðri hjá sér. Nemur hækkunin um 5%. Nokkuð tíðar verðhækkanir hafa verið hjá fóðursölum undanfarna mánuði en síðasta verðhækkun Landstólpa var 14. september sl. Samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu má rekja hækkunina til veikingar krónunnar.
Kaupendur á kjarnfóðri eru hvattir til að skoða vel gildandi verðskrá söluaðila hér á naut.is, gera verðsamanburð og ræða við fóðurráðgjafa RML varðandi fóðurkaupin. Fóðurkostnaður er stærsti kostnaðarliður við mjólkurframleiðsluna, ekki bara hér á landi heldur um allan heim, og kúabændur þurfa því að vera vel vakandi yfir þeim kostnaði og þeim kjörum sem bjóðast hverju sinni.
Með því að smella hér getur þú séð uppfærða verðskrá kjarnfóðurs hér á naut.is