Kínverjar fjárfesta í Frakklandi
06.05.2013
Kínverska afurðafyrirtækið Synutra hefur nú snúið vörn í sókn, en sem kunnugt er hafa afurðafélög víða úr heiminum verið að koma sér upp starfsemi í Kína. Synutra stendur hins vegar í stórræðum í Frakklandi og hafin er bygging á nýrri afurðastöð Synutra í bænum Carhaix í héraðinu Bretaníu, sem er í norð-vestur Frakklandi.
Markmið Synutra er að afurðastöðin verði tilbúin árið 2015, þegar mjólkurframleiðslan í löndum Evrópusambandsins verður gefin frjáls. Móttökugeta þessarar afurðastöðvar verður 100 milljón lítrar árlega sem munu fara í ostagerð fyrir evrópska markaðinn, en mysan verður duftuð og flutt til Kína og verður þar notað í ungbarnamjólk/SS.