Keyptar verða fjórar milljónir lítra af umframmjólk og greitt aukaálag á innvegna mjólk
12.10.2005
Stjórn SAM (Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði) ákvað á fundi sínum í dag að beina því til samlaganna að greitt verði fyrir próteinþáttinn í fjórum milljónum lítra af umframmjólk á þessu verðlagsári. Til að hvetja til viðbragða sem allra fyrst var einnig ákveðið að leggja til við samlögin að þau greiði álag á alla innvegna mjólk mánuðina nóvember 2005 til og
með janúar 2006. Álagið verði 1,70 kr á hvern innveginn lítra þessa mánuði.
Eftir þessa ákvörðun hafa kúabændur því tryggingu fyrir greiðslu á allt að 115 milljónum lítrum mjólkur, þar sem greiðslumark verðlagsársins er í dag 111 milljónir lítra.