Kaupfélag Skagfirðinga hækkar afurðaverð
26.10.2005
Frá og með 25. október síðastliðnum tók ný verðskrá gildi hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og þar með Kaupfélagi Króksfjarðar. Greiða þau nú hæstu verð í 8 flokkum, en Sláturhúsið Hellu greiðir sem fyrr hæsta verð í flestum flokkum eða 27.
Smellið hér til þess að sjá nýjan verðlista sláturleyfishafa.
Þar sem reiknilíkanið er einungis uppfært á mánudögum hefur því ekki verið breytt eftir þessa verðhækkun.