Kasakstan berst gegn miltisbrandi
09.11.2012
Ríkisstjórn Kasakstan hefur nú sett mikið átak í gang til þess að stemma stigu gegn útbreiðslu á miltisbrandi eftir að slíkt tilfelli kom upp í suð-austurhluta landsins. Eftir að miltisbrandur greindist settu yfirvöld bú og skepnur í einangrun í Taldy Kurgan héraðinu rétt við landamærin að Kyrgystan, þar sem tilfellið kom upp í lok september.
Alls voru 1.172 nautgripir, 4.437 kindur og geitur, 196 hross, 30 asnar og 100 svín í einangrun á búum sínum og voru svo öll bú sótthreinsuð. Vonir standa til þess að tekist hafi að koma í veg fyrir útbreiðslu þessa alvarlega sjúkdóms en ekki hafa borist frekari fregnir af veikum skepnum. Talið er að sjúkdómurinn hafi komið upp vegna þess að skepnum var gefinn úrgangur/SS.