Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Kári Gautason ráðinn til Bændasamtaka Íslands

05.03.2021

Kári Gautason hefur verið ráðinn til Bændasamtaka Íslands. Starfið er nýtt og mun Kári koma til með að starfa við úrvinnslu og greiningu hagtalna landbúnaðarins, ásamt því að koma að hagrænum greiningum sem tengjast umhverfis-, loftlagsmálum, fæðuöryggi og tryggingamálum.

Kári er uppalinn í Engihlíð í Vopnafirði. Hann hefur síðastliðinn þrjú ár starfað á Alþingi sem framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna. Hjá þingflokki VG var hann til ráðgjafar fyrir þingmenn, sérstaklega í málum fjárlaganefndar og atvinnuveganefndar þingsins. Þar áður var Kári í sérverkefnum hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) við endurmat á ræktunarstarfi í mjólkurframleiðslu. Kári hefur einnig reynslu af búskap úr Vopnafirði, en þar vann hann við loðdýrarækt og mjólkurframleiðslu, samhliða ráðgjafastarfi í ræktun og skýrsluhaldi loðdýra hjá RML. 

Ásamt því að vera með búvísindagráðu frá Landbúnaðarháskólanum er Kári með meistaragráðu frá Árósarháskóla í Danmörku í búfjárerfðafræði. Lokaverkefni hans snérist um að meta hagrænt gildi þess að taka upp erfðamengisúrval í loðdýrarækt.

Kári hefur hafið störf.