
Kálfa með skitu ætti að setja í einangrun
22.12.2016
Það er auðvitað vel þekkt að kálfar fái skitu, en sennilega er það ekki of oft að slíkir kálfar séu settir í einangrun, þ.e. teknir út úr hópnum sínum og hafðir sér. Þetta getur hins vegar verið afar mikilvægt svo líkur á smiti annarra kálfa séu eins litlar og hægt er, en þetta kemur fram í niðurstöðum finnskrar rannsóknar sem greint var frá í tímaritinu Veterinary journal í ágúst sl.
Í þessari finnsku rannsókn voru notuð gögn frá 82 kúabúum og var í rannsókninni skoðað samhengi á milli vinnubragða á búunum og kálfadauða. Í ljós kom að á þeim búum þar sem kálfar voru settir í einangrun var kálfadauði sjaldgæfari en á hinum búunum/SS.