Beint í efni

Íslenskar mjólkurvörur slógu í gegn á Norrænni mjólkurvörusamkeppni !

11.11.2010

Dagana 2.–4. nóvember síðastliðinn fór fram samkeppni milli norrænna mjólkurvara og fór keppnin fram á Mjólkurvörusýningunni í Herning í Danmörku, þar sem keppnin fer fram annað hvert ár. Til að meta hvaða vörur skara fram úr eru teknir fyrir þættir eins og samsetning, bragðgæði og útlit vörunnar. Alls bárust í keppnina 1.600 vörur frá helstu mjólkurvöruframleiðendum á Norðurlöndunum og að sjálfsögðu sendi Mjólkursamsalan úrval vara í keppnina.

 

Þetta var í 9. sinn sem íslenskur

mjólkuriðnaður tekur þátt í keppninni og eins og svo oft áður stóðu íslensku vörurnar uppi sem sigurvegarar í nokkrum flokkum! Skyr.is, Hleðsla og Ab-drykkur hrepptu t.a.m. gullverðlaun í sínum flokkum.

 

„Það er mjög ánægjulegt hversu vel gekk í keppninni og gaman að sjá hversu frábæra fagmenn íslenskur mjólkuriðnaður á“,  segir Jón Axel Pétursson, framkvæmdastjóri sölu- og markssviðs MS.

 

„Skyr.is með jarðarberjabragði vann sinn flokk og fékk gullverðlaun og þar að auki heiðursverðlaun. Aðrar vörur frá MS áttu einnig góðu gengi að fagna en samtals fengu vörur MS 34 verðlaun, þar á meðal má nefna að LGG+ smáskammtarnir og Benecol fengu silfurverðlaun, Ostakaka með hindberjum hlaut bronsverðlaun auk þess sem allar bragðtegundir af KEA skyrdrykk fengu verðlaun. Nokkrir ostar voru einnig verðlaunaðir en þar má nefna Höfðingja og Gullost, Gouda ost, Gotta og Maríbó ost”  sagði Jón Axel að lokum.