Beint í efni

Innvigtunin eykst á ný

09.11.2010

Innvigtun mjólkur hér á landi í síðustu viku var 2.070.003 lítrar og jókst um tæpa 15.000 lítra frá vikunni þar á undan. Þá má leiða líkum að því hún hafi náð árlegu lágmarki en það gerist að jafnaði í lok októbermánaðar eða byrjun nóvember. Fyrir ári síðan var vikuleg innvigtun 3,5% meiri en nú er. Úr þessu fer vikuleg innvigtun aftur vaxandi og mun að öllum líkindum ná hámarki um miðjan maí n.k. Á myndinni 
 

hér að neðan má sjá þróun á innvigtun mjólkur undanfarin ár.