Innvigtunin 3% meiri en á sama tíma í fyrra
02.08.2011
Að undanförnu hefur innvigtun mjólkur hér á landi verið um 3% meiri en á sama tíma í fyrra. Í viku 29 (17.-23. júlí) var hún 2.422.449 ltr. á móti 2.352.111 ltr í sömu viku í fyrra. Framan af ári var innvigtunin 1-2% minni en á sama tíma í fyrra. Frá lokum júnímánaðar 2011 hefur hún verið að þokast upp fyrir það sem var fyrir ári síðan. Raunar er vikuinnvigtunin nú heldur meiri en hún var árið 2009, eins og sjá má á myndinni hér að neðan./BHB