Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Innvigtun mjólkur í júní 3,41% minni en í fyrra

18.08.2010

Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði hefur mjólkurframleiðslan verið heldur minni í ár en árið 2009. Innvigtun mjólkur í júní, til afurðastöðva innan SAM, var t.a.m. 3,41% minni í ár en í fyrra.

 

Samtals nemur samdráttur í innvigtuninni það sem af er þessu ári 1.2 milljónum lítra miðað við sama tímabil árið 2009. Heildarframleiðslan á árinu var í lok júní komin í 65,3 milljónir lítra en á sama tíma árið 2009 var framleiðslan

komin í 66,4 milljónir lítra. Mismunurinn nemur 1,74%.

 

Í meðfylgjandi töflu má sjá hvernig innvigtunin skiptist á milli mánaða í ár og árið 2009.

 

Mánuður 2010 2009 Mismunur Mism. %
Janúar 10.301.428 10.766.374 -464.946 -4,32
Febrúar 9.926.408 10.049.873 -123.465 -1,23
Mars 11.597.540 11.313.417 +284.123 +2,51
Apríl 10.903.302 11.253.031 -349.729 -3,11
Maí 11.348.595 11.455.207 -106.612 -0,93
Júní 11.189.096 11.584.468 -395.372 -3,41
Júlí
Ágúst
September
Október
Nóvember
Desember
SAMTALS 65.266.369 66.422.370 -1.156.001 -1,74