Innvigtun mjólkur dróst saman í júlí
19.08.2016
Samkvæmt nýútkomnu yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var sala á fitugrunni 134,4 milljónir lítra síðustu 12 mánuði. Það er aukning frá fyrra ári um 1,6%. Undanfarinn ársfjórðung (maí-júlí 2016) er söluaukningin 1,7% miðað við sama tímabil fyrir ári. Sala á próteingrunni undanfarið ár var 125,6 milljónir lítra, sem er aukning um 2,7% frá árinu á undan.
Ef litið er til síðasta ársfjórðungs er söluaukning á próteingrunni 4,5%. Innvegin mjólk undanfarna 12 mánuði er 151,8 milljónir lítra, sem er 9,1% aukning frá árinu á undan. Sé litið til síðasta mánaðar er það sá fyrsti á þessu ári þar sem innvigtun mjólkur er minni en í sama mánuði árið 2015. Alls nam innvigtunin 12,4 milljónum lítra nú í júlí en í fyrra nam innvigtunin í júlí 13,0 milljónum lítra og nemur samdrátturinn 4,5%/SS.