Innvigtun mjólkur 709 milljarðar lítra
03.11.2012
Samkvæmt nýrri samantekt IFCN jókst innvigtun mjólkur á heimsvísu um 25 milljarða lítra frá árinu 2010 til 2011 eða úr 684 milljörðum lítra í 709 milljarða lítra, sem er aukning um 3,7%. 20 stærstu afurðafélögin tóku á móti 277 milljörðum lítra eða 39% allrar framleiddrar kúa- og buffalómjólkur heimsins og hækkar þetta hlutfall um 1% á milli ára. Hluti hinnar innvegnu mjólkur er seldur áfram frá þessum félögum en þau unnu þó sjálf úr 173 milljörðum lítra sem er aukning um 7,5 % á milli ára.
Fyrir nokkru birtum við yfirlit Rabobank um stærstu afurðafélög heimsins, en sá listi byggir á veltu félaganna. IFCN raðar hins vegar félögum upp eftir magni innveginnar mjólkur og því verða nokkur sætaskipti á lista IFCN miðað við lista Rabobank. Á listanum yfir 10 stærstu afurðafélögin hafa orðið nokkrar breytingar sl. ár í kjölfar uppkaupa og samruna stóru félaganna á markaðinum. Mest stækkar Lactalis á árinu eftir uppkaupin á Parmalat í Ítalíu og þar á eftir Arla í kjölfar samruna við MUH og Milk-Link.
Líkt og fyrri ár ber þó Fonterra í Nýja-Sjálandi höfuð og herðar yfir önnur félög með 21,6 milljarða lítra innvigtun á ári og 3,0% af innvigtun heimsins. Til samanburðar má geta þess að innvigtun hér á landi nam 0,018% af innvigtun mjólkur árið 2011. Fonterra er því nálægt því að vera 170-falt stærra en MS!
Hér má sjá yfirlit IFCN um stöðu afurðafélaga, eftir innvigtun mjólkur, í milljörðum lítra:
1 Fonterra, Nýja Sjálandi 21,6. Árið 2010: 20,5 (1)
2 Dairy Farmers of America, Bandaríkjunum 17,1. Árið 2010: 17,1 (2)
3 Lactalis, Frakklandi 15,0. Árið 2010: 10,2 (6)
4 Nestle, Sviss 14,9. Árið 2010: 14,9 (3)
5 Dean Foods, Bandaríkjunum 12,0. Árið 2010: 11,8 (4)
6 Arla Foods, Norður-Evrópa 12,0. Árið 2010: 8,7 (7)
7 FrieslandCampina, Hollandi 10,1. Árið 2010: 10,3 (5)
8 Danone, Frakklandi 8,2. Árið 2010: 8,0 (8)
9 Kraft Foods, Bandaríkjunum 7,8. Árið 2010: 7,5 (10)
10 DMK, Þýskalandi 6,9. Árið 2010 6,7 (11)
/SS