Innvigtun í viku 15
26.04.2010
Innvigtun mjólkur í viku 15 (11.-17. apríl) raskaðist talsvert vegna eldgossins í Eyjafjallajökli en hún var 2.518.685 lítrar. Það er rúmlega 3% minna en í sömu viku í fyrra og hafa eldsumbrotin sitt að segja í þeim efnum. Mjólkurframleiðsla á landinu síðustu tólf mánuði hefur verið tæplega 6% meiri en innanlandsneysla og birgðastaða mjólkuriðnaðarins er ágæt. Til skamms tíma mun framleiðslusamdráttur vegna áhrifa af eldgosi í Eyjafjallajökli því ekki hafa truflandi áhrif á framboð íslenskra mjólkurafurða.