Beint í efni

Innlausn og kaup á greiðslumarki

20.12.2017

Matvælastofnun auglýsir að skilafrestur umsókna vegna fyrstu innlausnar  og kaupa á greiðslumarki á árinu 2018 er 15. janúar næstkomandi. Skilyrði fyrir kaupum er greiðsla berist í síðasta lagi 15. febrúar 2018.

Umsóknum um kaup og sölu þarf að skila á þjónustugátt Matvælastofnunar en umsókn um kaup á greiðslumarki er nr. 7.18 inn á þjónustugáttinni. Umsókn um sölu (innlausn) á greiðslumarki er nr. 7.14 á þjónustugáttinni.   Umsókn  um innlausn þarf að fylgja  útfyllt og undirritað eyðublað ásamt  veðbókarvottorði og þinglýstu leyfi veðhafa jarðarinnar ef einhverjir eru. Innlausnarverð á lítra á innleystu greiðslumarki liggur fyrir  í síðasta lagi 1. janúar 2018. Matvælastofnun greiðir fyrir innleyst greiðslumark eigi síðar en 15. mars 2018.

Greiðslumark framleiðanda með enga framleiðslu árið 2017 verður innleyst  á  öðrum innlausnardegi ársins í maí 2018 án þess að bætur komi fyrir ef framleiðandi hefur ekki sent inn umsókn um innlausn í síðasta lagi 15. mars 2018.

/Tilkynning frá Búnaðarstofu Matvælastofnunar