
Innkölluðu 3,5 tonn af heilum
25.11.2016
Bandaríska matvælafyrirtækið Green Bay Dressed Beef varð nýverið að kalla inn 3,5 tonn af nautgripaheilum en talin var hætta á því að borist hefði í sendinguna heili sem ekki uppfyllti allar kröfur um heilbrigði, en óheimilt er t.d. að nota heila úr gömlum kúm svo dæmi sé tekið. Heilarnir voru komnir í sölu og etv. á matardiska hjá einhverjum þegar þetta uppgötvaðist enda hafði fyrirtækið notað heilana í ýmsar vörur og selt til umboðsaðila í sjálfri Kalíforníu.
Hvort heilar eru oft bornir á borð Kalíforníubúa skal ósagt látið um en etv. rata þeir öðru hverju sem próteinríkt hráefni í bökur eða annað slíkt hnossgæti. Forsvarsmenn fyrirtækisins gátu amk. ekki gefið skýringar á því hvar heilarnir sem átti að kalla inn höfðu endað en bentu bara á umboðsaðilann í Kalíforníu/SS.