
Daði Guðjónsson nýr stjórnarformaður Icelandic Lamb
21.11.2023
Daði Guðjónsson hefur verið kjörinn stjórnarformaður markaðsstofunnar Icelandic Lamb sem fer með kynningar- og ímyndarmál fyrir íslenska sauðfjárrækt.
Daði tekur við af Gísla S. Brynjólfssyni, sem hefur sinnt hlutverki stjórnarformanns frá árinu 2020. Í stjórninni sitja nú ásamt Daða, Trausti Hjálmarsson formaður deildar sauðfjárbænda hjá Bændasamtökunum og Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda.
Daði starfar sem forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni hjá Krónunni, en áður starfaði hann m.a. sem fagstjóri neytendamarkaðssetningar hjá Íslandsstofu þar sem hann stýrði erlendum markaðsverkefnum fyrir íslenskar útflutningsgreinar.
„Icelandic Lamb er öflugt markaðsverkefni sem ég hef fengið að kynnast vel í gegnum bæði störf mín hjá Íslandsstofu og Krónunni. Nú þegar upprunamerkið hefur náð evrópskri upprunavernd þá liggja fyrir okkur enn frekari tækifæri til að auka vegsæld og virði íslensks lambakjöts hérlendis sem erlendis“ segir Daði og hlakkar til samstarfsins og þakkar það traust sem sauðfjárbændur hafa falið honum í stjórn verkefnisins.
Trausti Hjálmarsson segir „Við fögnum því að fá Daða til liðs við okkur og væntum þess að hans þekking og reynsla á neytendamarkaði verði verkefninu dýrmæt“
Daði er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA-gráðu í hagfræði, með fjölmiðlafræði sem aukagrein, frá Háskóla Íslands.
Icelandic Lamb rekur upprunamerki á ensku og íslensku að evrópskri fyrirmynd upprunamerkja fyrir matvörur og er fyrsta íslenska afurðin til að fá evrópska upprunavernd “Protected Designation of Origin”.
