Beint í efni

Hvernig verða hagsmunir landbúnaðar tryggðir í væntanlegum aðildarviðræðum við ESB? – Opinn fundur með Jóni Bjarnasyni

31.08.2009

Boðað er til opins fundar með Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á morgun, 1. september. Fundurinn verður haldinn á 2. hæð Hótel Sögu – Harvard fundarsal og hefst hann klukkan 13.00. Fundarefnið verður:
Hvernig verða hagsmunir landbúnaðar tryggðir í væntanlegum aðildarviðræðum við ESB?

 

Framsögu hafa Haraldur Benediktsson formaður BÍ og Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra.

Fundurinn er öllum opinn. Allir þeir sem áhuga hafa á málefninu eru hvattir til að mæta.