
Hrossaræktarfundir 4. – 7. mars
01.03.2013
Almennir fundir um málefni hrossaræktarinnar verða haldnir á eftirtöldum stöðum í komandi viku.
Allir fundirnir hefjast kl. 20:30:
- mánudaginn 4. mars. Gistihúsinu, Egilsstöðum.
- þriðjudaginn 5. mars. Mánagarði, Hornafirði.
- fimmtudaginn 7. mars. Ásgarði, Hvanneyri.
Frummælendur verða Kristinn Guðnason, formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt, og Guðlaugur V. Antonsson hrossaræktarráðunautur.