Beint í efni

Hrossaræktarfundir

24.02.2010

Almennir fundir um málefni hrossaræktarinnar verða haldnir á eftirtöldum stöðum á næstu vikum. Allir fundirnir hefjast kl. 20:30.

 

þriðjudaginn 2. mars. Svaðastaðahöllinni, Sauðárkróki.

miðvikudaginn 3. mars. Hlíðarbæ, Eyjafirði.

fimmtudaginn 4. mars. Sjálfstæðissalnum, Blönduósi.

 

mánudaginn 8. mars. Félagsheimili Fáks, Reykjavík.

þriðjudaginn 9. mars. Hvanneyri, Borgarfirði.

miðvikudaginn 10. mars. Félagsheimili Sleipnis, Selfossi.

 

mánudaginn 15. mars. Gistihúsinu, Egilsstöðum.

þriðjudaginn 16. mars. Stekkhól, Hornafirði.

 

Frummælendur verða Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt, Sigrún Ólafsdóttir formaður Félags tamningamanna og fulltrúi í fagráði í hrossarækt og Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands.