
Hótel Sögu lokað
28.10.2020
Hótel Saga er tvímælalaust eitt glæsilegasta hótel landsins en COVID-19 faraldurinn hefur haft verulega neikvæð áhrif á rekstur ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi og um allan heim. Hótel Saga er þar ekki undanskilin. Stjórnendur hótelsins eru nauðbeygðir til að loka hótelinu frá og með 1. nóvember næstkomandi. Önnur starfsemi í húsinu verður óbreytt.
Lokunin hefur ekki áhrif á aðra starfsemi í húsinu og verður starfsemi Bændasamtaka Íslands og annarra samtaka í landbúnaði sem starfa á 3. hæð Bændahallarinnar sem og annarra fyrirtækja og félaga sem eru með starfsemi annarsstaðar í húsinu óbreytt.
Hótelið gengur nú í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu og stendur vinna við hana yfir. Stjórnendur hótelsins eru nauðbeygðir til að loka hótelinu frá og með 1. nóvember næstkomandi.
Gríðarlegur tekjusamdráttur
Fyrir liggur að Hótel Saga hefur orðið fyrir gríðarlegum tekjusamdrætti vegna faraldursins. Mikil óvissa er uppi um hvernig rekstrarumhverfi fyrirtækja í ferðaþjónustu muni þróast í nánustu framtíð. Er nú svo komið að stjórnendur þess sjá sér ekki annan kost en að loka því, að minnsta kosti að sinni, þar sem ekki sér enn fyrir endann á faraldrinum og engin augljós merki eru um að straumur ferðamanna til Íslands muni aukast á næstu vikum og mánuðum.
Nauðbeygð til að loka hótelinu
Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri á Hótel sögu, segir að í raun séu stjórnendur hótelsins nauðbeygðir til að loka hótelinu.
„Síðustu sóttvarnaraðgerðir gera það að verkum að það er ekki lengur rekstrargrundvöllur til að halda starfseminni gangandi. Hótel Saga er stórt hótel og það þarf að lágmarki 15 til 20 starfsmenn til að halda uppi allra nauðsynlegustu þjónustu og tekjumöguleikar eins og staðan er í dag nánast engir. Þannig að ákvörðunin um að loka er tekin af illri nauðsyn þrátt fyrir að í september hafi verið stefnt að því að hafa opið til áramóta eða þangað til að fundin hafi verið lausn við endurskipulagningu rekstursins.“