Beint í efni

Hið rétta um transfitusýrur í mjólkurvörum

19.11.2010

Undanfarið hefur verið nokkuð um umræðu um transfitusýrur, m.a. í nýjasta tölublaði Bændablaðsins. Rétt er að geta þess að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa myndast við herðingu þeirra. Þetta á m.a. við um vörur eins og Smjörva og Létt og laggott, sem innihalda vissulega jurtaolíu að hluta til, en hún er að öllu leyti óhert og inniheldur því engar transfitusýrur.

 
Hins vegar eru í mjólkurvörum, eins og t.d. í smjöri, náttúrulegar transfitusýrur í einhverju

magni. Það magn er þó talið vera of lítið til að mögulega geta valdið skaða ef miðað er við hefðbundna neyslu þessara afurða. Ennfremur eru gerðir náttúrulegra transfitusýra í mjólkurafurðum ekki þær sömu og verða til við herðingu jurtaolíu og hafa líklega ekki sömu áhrif á hjarta- og æðasjúkdóma. Jafnvel er talið að hinar náttúrulegu transfitusýrur hafi engin og jafnvel frekar verndandi áhrif á hjarta- og æðasjúkdóma, en nokkrar rannsóknir hafa verið birtar sem styðja þá kenningu, þó of snemmt sé að fullyrða um slíkt.

 

(af heimasíðu MS: www.ms.is)