Beint í efni

Heyskapur um helgina?

25.06.2009

Undanfarna þrjá mánudaga hafa ráðunautar tekið grassýni til að fá mat á orkugildi þess. Grassýnin eru tekin á sjö stöðum á landinu:

Hvanneyri – Borgarfirði
Sauðanesi – Húnaþingi eystra
Hamri – Skagafirði
Möðruvöllum – Hörgárdal
Egilsstöðum – Héraði
Fornustekkum – Hornafirði
Stóra-Ármóti – Hraungerðishreppi

Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar í samhengi við fyrri ár þá virðist fall á meltanleika túngrasanna vera svipað og árið 2007 en fall á meltanleika er að meðaltali um viku seinna en í fyrra.

Næstu daga er spáð miklum hlýindum um allt land en það þýðir að fall á meltanleika fellur að sama skapi hratt. Þróun meltanleika nokkurra grastegunda er líður á sumarið má sjá hér.

Algeng viðmiðun á “úrvalsheyi” er að meltanlegt þurrefni fari ekki niður fyrir 75% og fóðureiningar í kg þurrefnis fari ekki niður fyrir 0,87 FEm. Við heyverkunina minnkar fóðurgildið alltaf eitthvað. Síðastliðinn mánudag var meltanleikinn á flestum mælingarstöðunum kominn niður fyrir eða að þessari viðmiðun.

Niðurstöður grasþroskamælinganna má sjá hér