Heyrir nautaat brátt sögunni til?
28.07.2010
Í dag mun fylkisþingið í Katalóníu á Spáni greiða atkvæði um bann við nautaati og er fastlega reiknað með því að það verði bannað. Eins og flestir vita er nautaat þjóðar“íþrótt“ á Spáni, þar sem nautabani sýnir listir sínar, þreytir naut og stingur í makka þess litlum spjótum. Eftir nokkurn tíma hefur nautið nánast örmagnast og þá stingur nautabaninn löngu sverði í gegnum mænu þess, niður í hjarta og banar nautinu fyrir framan áhorfendur.
Nautaat er afar umdeilt og hafa mótmæli gegn
þessari dýraníð farið mjög vaxandi á undanförnum árum. Fari svo að Katalóníufylki banni nautaatið, verður það fyrsta fylkið sem gerir slíkt á Spáni ef frá er talið bann við nautaati á Kanaríeyjum, sem var sett árið 1991.