Helgarferð fyrir tvo til útlanda í aðalvinning á árshátíð kúabænda!
31.03.2006
Eins og flestum er kunnugt um verður haldin glæsileg afmælishátíð laugardaginn 8. apríl nk. í tilefni af 20 ára afmæli LK. Fjögur fyrirtæki verða með opið hús frá 13-17 fyrir kúabændur en þau eru: Vélaver, Vélaborg, Vélfang og Þór. Hjá öllum þessum fyrirtækjum verður allt að 20% afsláttur af völdum vörum. Þá verður
mikið um að vera í Smáralind fyrir þá sem ekki hneigjast til vélanna, s.s. skemmtiatriði, vörukynningar, sögusýning nautgriparæktar, sýning á myndverkum Jóns Eiríkssonar o.fl. Þetta verður nánar auglýst síðar.
Að kvöldi laugardagsins verður svo haldin árshátíð kúabænda á Broadway hótel Íslandi þar sem mikil skemmtun verður fram á rauða nótt með ýmsum uppákomum. Sérstakir gestir hátíðarinnar verða þeir Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og Davíð Oddsson, seðlabankastjóri. Veislustjórn hvílir á Gísla „Út og suður“ Einarssyni. Eins og venja er verða dregnir út vinningar í happadrætti og er aðalvinningur kvöldsins helgarferð fyrir tvo til útlanda með gistingu og er jafnframt afleysing í fjósi innifalin í vinninginum!