Heldur slakari sala nautgripakjöts
18.05.2012
Bændasamtökin hafa nú tekið saman nýjar framleiðslu- og sölutölur kjötgreina fyrir apríl. Í samantektinni kemur fram að sala á nautgripakjöti í mánuðinum var 3,5% minni en hún var í sama mánuði í fyrra, en að ársfjórðungssalan hafi þó verið 6,7% meiri. Þetta er þó töluverð eftirgjöf frá fyrri mánuði. Þó er nú árssalan, þ.e. salan sl. 12 mánuði, 4.014 tonn sem er aukning um 5,1% miðað við síðustu 12 mánuðina þar á undan.
Heildarframleiðsla nautgripakjöts sl. 12 mánuði var 4.000 tonn (3.999.956 kg), en framleiðslan í mánuðinum var 299 tonn og nam sala nautgripakjöts í mánuðinum 298 tonnum. Sé horft til sundurliðunar á sölu nautgripakjöts í mánuðinum var sem fyrr mest sala í ungnautakjöti eða 185 tonn og á 12 mánaða grunni nemur ungnautakjötssalan 2.294 tonnum eða 57,1% af heildarsölunni. Sala á kýrkjöti síðustu 12 mánuði var 1.463 tonn eða sem nemur 36,4% af heildarsölunni.
Sé litið til annarra kjöttegunda kemur fram í samantektinni að heildarsalan á landinu öllu hefur aukist sl. 12 mánuði um 2,4%. Mest er sem fyrr salan á alifuglakjöti eða 7.349 tonn (30,7%) og þar á eftir kemur lamba- og kindakjöt með 6.332 tonn eða 26,4% markaðshlutdeild/SS