Heimsmarkaðsverð: undanrennuduft stöðugt en smjör gefur eftir
01.12.2011
Samkvæmt upplýsingum Dairy Industry Newsletter, hefur heimsmarkaðsverð á undanrennudufti verið nokkuð stöðugt í tæp tvö ár, á milli 3.000 og 3.500 dollarar tonnið. Í sögulegu samhengi er það mjög hátt, á árabilinu 1989-2005 var það lengst af í kringum 1.500 dollarar tonnið. Smjörverð hefur farið hækkandi í tæp tvö ár, úr 3.800 í 4.600 dollara tonnið. Undanfarnar vikur hefur það þó gefið talsvert eftir og er nú komið í um 3.600 dollara tonnið. Sé litið nokkra áratugi aftur í tímann, er það einnig mjög hátt. 1989 til 2005 var smjörverð svipað og á mjólkurduftinu, 1.500 dollarar tonnið.
Á myndinni hér að neðan má sjá þróun á heimsmarkaðsverði undanrennudufts og smjörs, frá ársbyrjun 2006 til nóvember 2011. Verðið á þessum vörum er enn ráðandi um hvað mögulegt er að greiða kúabændum fyrir mjólk umfram greiðslumark, sem flytja skal úr landi lögum samkvæmt.